Innlent

Tveir létust í banaslysi í Eyja­firði

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Banaslys varð á Eyjafjarðarbraut í dag.
Banaslys varð á Eyjafjarðarbraut í dag. Lögreglan

Tveir létust þegar bíll fór út af vegi á Eyjafjarðarbraut eystri skammt norðan við Laugaland skömmu eftir klukkan eitt í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá.

Slysið varð skammt norðan við Laugaland á Eyjafjarðarbraut eystri. Í tilkynningu lögreglunnar segir að bíll hafi lent út af og tveir  sem voru í bílnum hafi verið úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.


Tengdar fréttir

Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði

Umferð um Eyjafjarðarbraut eystri hefur verið lokað á milli Syðri Tjarna og Ytri Tjarna vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Tveir voru í bílnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×